Samþykktir fyrir Skills Ísland – samtök um keppnir í iðn- og verkgreinum á Íslandi

SAMÞYKKTIR FYRIR VERKIÐN SKILLS ÍSLAND

SAMTÖK UM KEPPNIR Í IÐN- OG VERKGREINUM Á ÍSLANDI

1. gr.

Nafn samtakanna er; Verkiðn Skills Ísland á Íslandi

– samtök um keppnir í iðn- og verkgreinum

2. gr.

Heimili Verkiðnar Skills Ísland og varnarþing er í Reykjavík.


3. gr.

Markmið samtakanna eru að;
1. 2. 3. auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar
bæta ímynd iðn- og verkgreina
að kynna iðn- og starfsnám, standa fyrir Íslandsmóti iðngreina og vera fulltrúi Íslands í
alþjóðlegu samstarfi um keppnir í iðn- og verkgreinum.

4. 5. vekja athygli á tækifærum sem felast í námi og starfi í þessum greinum
vera samstarfsaðili við erlenda aðila og samtök sem vinna á sama grunni

Réttur til aðildar og úrsögn.

4. gr.

Rétt til aðildar að samtökunum eiga fagfélög launamanna og atvinnurekenda,
hagsmunasamtök iðnaðarmanna og framhaldsskóla eða samtök þeirra. Samtök nemenda í
framhaldsskólum eiga rétt á fulltrúa með málfrelsi og tillögurétt.

5. gr.

Ósk um þátttöku sendist skriflega til stjórnar Verkiðnar Skills Ísland. Fullgildir félagar

teljast þeir sem hafa verið samþykktir af stjórn og eru skuldlausir við samtökin.

Aðildarfélag getur sagt sig úr samtökunum með skriflegri tilkynningu þar að lútandi ogskal hún send formanni stjórnar fyrir komandi áramót og tekur hún þá gildi á næsta aðalfundi. Einn fulltrúi frá hverju aðildarfélagi á sæti í fulltrúaráði Verkiðnar Skills Ísland.

Stjórn, fundir og ákvarðanir.

6. gr.

Stjórn Verkiðnar, Skills Ísland, skipa fimm aðalmenn og tveir varamenn. Formaður er
kosinn sérstaklega til tveggja ára. Tveir stjórnarmenn og einn varamaður skulu kosnir
árlega til tveggja ára í senn af fulltrúum í fulltrúaráði. Að öðru leiti skiptir stjórn með sér
verkum. Formaður boðar stjórn þegar þurfa þykir. Laun eru ekki greidd fyrir setu á
stjórnarfundum

7. gr.

Stjórn samtakanna skal vinna að markmiðum þeirra og öðrum þeim verkefnum sem

fulltrúaráðið felur henni. Stjórnin kemur fram fyrir hönd samtakanna út á við.

Halda skal stjórnarfund ef stjórnarmaður óskar þess. Stjórnarfundi skal boða á tryggilegan

hátt. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef allir stjórnarmenn eru mættir og ályktun er samþykkt

samhljóða.

Bls. 1 af 4Samþykktir fyrir Skills Ísland – samtök um keppnir í iðn- og verkgreinum á Íslandi

Stjórnarmaður má ekki taka þátt í meðferð einstakra mála sem varða hann persónulega

eða sérstaklega þá starfsemi sem hann er fulltrúi fyrir.

8. gr.

Stjórn samtakanna skal halda gerðarbók þar sem skráðar skulu fundargerðir aðalfunda, félagsfunda og stjórnarfunda. Tryggilega skal færa til bókar allar ákvarðanir sem teknar eru á aðal-, félags- og stjórnarfundum. Fundargerðirnar skal varðveita á tryggilegan hátt.

Fjárhagur, fjárvarsla og ábyrgð.

9. gr.

Stjórnin ber ábyrgð á rekstri og fjárhag samtakanna.
Fjárhagslegar skuldbindingar samtakanna eru óviðkomandi þeim sem eiga aðild að þeim.
Firmaritun samtakanna er í höndum meirihluta stjórnar.

10. gr.

Aðalfundur ákveður árgjöld. Stjórn skal gera fjárhags-/rekstraráætlun sem lögð skal fyrir
aðalfund, sbr. 11. gr. Senda skal aðildafélögum reikninga félagsins og fjárhagsáætlun
a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.

Aðalfundur, félagsfundir og atkvæðagreiðslur.

11. gr.

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum samtakanna. Aðalfund skal halda árlega eigi
síðar en í lok júní. Aðalfund skal halda, að loknu Íslandsmóti árið sem það er haldið.
Hann skal boða með tryggilegum hætti um netföng aðildarfélaganna með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

• Skýrsla stjórnar
• Endurskoðaðir reikningar félagsins
• Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
• Fjárhags- og rekstraráætlun og ákvörðun um árgjöld
• Samþykktarbreytingar
• Uppgjör að loknu Íslandsmóti (þegar við á)
• Skipulag næsta Íslandsmóts (þegar við á)
• Kosning formanns og stjórnar (þegar við á)
• Kosning skoðunarmanna reikninga
• Erlent samstarf
• Önnur mál

12. gr.

Félagsfund skal halda svo oft sem þurfa þykir að ákvörðun stjórnar og alltaf ef 1/3 aðildarfélaga óskar þess. Félagsfund skal boða með tryggilegum hætti um netföng aðildarfélaganna með hæfilegum fyrirvara. Bls. 2 af 4 Samþykktir fyrir Skills Ísland – samtök um keppnir í iðn- og verkgreinum á Íslandi

13. gr

Hvert aðildarfélaganna fer með eitt atkvæði á aðal- og félagsfundum og skal stjórnarformanni samtakanna send tilkynning um það hver fer með atkvæði félagsins á aðalfundi og hver til vara í forföllum aðalmanns.
Framkvæmdastjórar, starfsmenn og stjórnarmenn aðildarfélaga hafa rétt til setu á aðal- og félagsfundum með málfrelsi og tillögurétti.

Breytingar á samþykktum og slit samtakanna.

14. gr.

Samþykktum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi. Allar breytingar skoðast samþykktar með einföldum meirihluta aðildarfélaga. Samtökum þessum verður slitið með sameiginlegri ákvörðun aðalfundar eða framhaldsaðalfundar með sömu formerkjum og hér að framan um breytingar á samþykktunum.

15. gr.

Ef samtökunum verður slitið skal ráðstafa eigum samtakanna til skyldra málefna,
samkvæmt ákvörðunum aðalfundar

Svo samþykkt á aðalfundi 15. júní 2020

Bls. 3 af 4 Samþykktir fyrir Skills Ísland – samtök um keppnir í iðn- og verkgreinum á Íslandi

Stofnaðilar og aðildarfélög:

Bílgreinasambandið
Félag hársnyrtisveina
GRAFÍA stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík
Iðnmennt
MATVÍS
Meistarasamband byggingarmanna
Rafiðnaðarsamband Íslands
SAF
Samiðn
Samtök Iðnaðarins
SART
Sjúkraliðafélag Íslands
VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna

Bls. 4 af 4