Verkiðn hefur utanumhald á Íslandsmóti iðn- og verkgreina Mín Framtíð og þátttöku á Euroskills. SkillsIceland er að: auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar bæta ímynd iðn- og verkgreina. Megin verkefni Verkiðnar eru:
Mín framtíð – Íslandsmót iðn- og verkgreina: Verkiðn heldur utan um skipulagningu þessa stóra viðburðar. Á mótinu keppa nemendur og fagfólk í fjölmörgum iðn- og verkgreinum ásamt því að framhaldsskólar og atvinnulífið kynna námsmöguleika sína.

Erlend samstarfsverkefni (EuroSkills og WorldSkills): Verkiðn heldur utan um þátttöku Íslands í evrópskum og alþjóðlegum keppnum í iðngreinum, þar sem fulltrúar Íslands keppa við bestu menntuðu iðnaðarmenn annarra landa.

Kynning á iðnnámi: Samtökin vinna náið með mennta- og barnamálaráðuneytinu, atvinnulífinu, skólum og stéttarfélögum að því að kynna fjölbreytt tækifæri tengd verknámi fyrir grunn- og framhaldsskólanemendum.