
13. - 15. mars 2025
fimmtudagur 13. mars 8:30 - 16:00
föstudagur 14. mars 9:00 - 16:00
laugardagur 15. mars 10:00 - 15:00 (fjölskyldudagur)
Öll velkomin (frítt inn), alla dagana.
*uppfært 11. mars 2025.
Íslandsmót í 19 greinum
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
Bifvélavirkjun, bifreiðasmíði, bílamálun, forritun, grafískri miðlun, hársnyrtiiðn, húsasmíði, málmsuðu, pípulögnum, rafeindavirkjun, rafvirkjun, skrúðgarðyrkju, snyrtifræði, vefþróun, veggfóðrun og dúkalögn, gull- og silfursmíði, fataiðn, málaraiðn og múriðn.
Sigur á Íslandsmótinu getur gefið möguleika á að keppa í Evrópu á Euroskills en næsta keppni fer fram í Herning í Danmörku í september 2025.
25 skólar munu kynna námsframboð sitt en von er á rúmlega 9000 nemendum 9. og 10. bekkja á viðburðinn. Skólarnir eru:
Borgarholtsskóli, Flugskóli Íslands, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Flugskóli Íslands, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Framhaldsskólinn á Laugum, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Kvennaskólinn í Reykjavík, Landbúnarháskóli Íslands, Lýðskólinn á Flateyri, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í Reykjavík, Menntaskóli Borgarfjarðar, Menntaskóli í tónlist, Menntaskólinn á Ísafirði, Menntaskólinn við Sund, Myndlistaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn, Verkmenntaskóli Austurlands og Verzlunarskóli Íslands.

Taktu þátt - Vegabréf - leikur
Mundu þú þarft að fylgja ,,leikreglum” til að komast í pottinn!
Yfir 150 vinningar
Vinningar eru eftirfarandi:
Félag blikksmiðjueigenda - Iphone 16e - 125.000 kr.
Elko - 100.000 kr gjafabréf
Kringlan – 50 þús. kr. gjafabréf
Félag húsasmíðameistara gefur 50.000 kr gjafabréf
Sambíó – 20 bíómiðar
Skylagoon – 6 stk. Saman gjafabréf
Skylagoon – 2 stk. Sér gjafabréf (sérklefi)
Elding hvalaskoðun – 20 stk. hvalaskoðun fyrir fjölskylduna
Flyover Iceland – 20 stk. gjafabréf
IÐNÚ - 6 x 5000 kr gjafabréf á skólabækur í IÐNÚ.
Rafmennt - 2 x gjafabréf (vinnubuxur)
SART gefur 50 bíómiða í Sambíóin.
Stúdíó sýrland - 2 x stúdíótími með kennara.
Málarameistarafélagið gefur 3 sett af AirPods 4
Skrúðgarðyrkja gefur 10x bíómiða
Félag dúklagninga og veggfóðrarameistara gefur 10x 2000kr gjafabréf í Ísbúð Vesturbæjar
*uppfært 12. mars 2025.
Drögum út 31. mars
Fyrir keppendur og aðstoðarfólk.































