
Grunnskólanemum í 9. og 10. bekk er sérstaklega boðið á Mína framtíð og má reikna með um 9000 nemendum í mars 2027. Þar öðlast nemendur bæði tækifæri til þess að kynna sér það fjölbreytta nám sem er í boði í framhaldsskólum landsins auk þess að berja augum sterkar fyrirmyndir sem ýmist keppa í eða sýna handtök í samtals 38 iðn-, verk-, list- og tæknigreinum.
