Dagana 10 – 13. mars 2027 mun Verkiðn halda MÍNA FRAMTÍÐ, Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningu sem fram fer í Laugardalshöll. Mín framtíð er haldin í samvinnu við Mennta- og
barnamálaráðuneytið, framhaldsskóla um allt land, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina. Mótið og framhaldsskólakynningin hafa verið haldin annað hvert ár frá árinu 2007 fyrir tilstilli Verkiðnar sem eru íslensk systursamtök evrópsku Skills samtakanna sem eru aðili að WorldSkills International.