Sjáumst í Laugardalshöll 10-13 mars 2027

Dagana 10.–13. mars 2027 fer fram Mín framtíð, sem er Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning. Það er tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi og koma og sjá æsispennandi keppni ásamt því að kynnast námi í framhaldsskóla.
Gert er ráð fyrir að á bilinu 9.000 til 10.000 grunnskólanemendur mæti á viðburðinn en öllum nemendum 9. og 10. bekkjar er boðið. Á Íslandsmót iðn- og verkgreina, reyna keppendur á hæfni sína í krefjandi verkefnum. Keppt hefur verið í tæplega 30 greinum hverju sinni og takast keppendur á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipa og fagmennsku.

