13. - 15. mars 2025

fimmtudagur 13. mars 8:30 - 16:00

föstudagur 14. mars 9:00 - 16:00

laugardagur 15. mars 10:00 - 15:00 (fjölskyldudagur)

Öll velkomin (frítt inn), alla dagana.

*uppfært 11. mars 2025.


Íslandsmót í 19 greinum

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Bifvélavirkjun, bifreiðasmíði, bílamálun, forritun, grafískri miðlun, hársnyrtiiðn, húsasmíði, málmsuðu, pípulögnum, rafeindavirkjun, rafvirkjun, skrúðgarðyrkju, snyrtifræði, vefþróun, veggfóðrun og dúkalögn, gull- og silfursmíði, fataiðn, málaraiðn og múriðn. 

Sigur á Íslandsmótinu getur gefið möguleika á að keppa í Evrópu á Euroskills en næsta keppni fer fram í Herning í Danmörku í september 2025. 


25 skólar munu kynna námsframboð sitt en von er á rúmlega 9000 nemendum 9. og 10. bekkja á viðburðinn. Skólarnir eru:

Borgarholtsskóli, Flugskóli Íslands, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Flugskóli Íslands, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Framhaldsskólinn á Laugum, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Kvennaskólinn í Reykjavík, Landbúnarháskóli Íslands, Lýðskólinn á Flateyri, Menntaskólinn í Kópavogi,  Menntaskólinn í Reykjavík, Menntaskóli Borgarfjarðar, Menntaskóli í tónlist, Menntaskólinn á Ísafirði, Menntaskólinn við Sund, Myndlistaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn, Verkmenntaskóli Austurlands og Verzlunarskóli Íslands. 


Vegabréf - leikur

Á sýningunni fá nemendur ,,Vegabréf” við innganginn. Leysa nokkrar þrautir inn á sýningunni og svara svo nokkrum spurningum með foreldrum þegar heim er komið. Veglegir vinningar í boði.

Fyrir keppendur og aðstoðarfólk.